|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|
16.04.2006 19:34:02 / SiggaLára
Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegra páska!! og
afsaka það hvað ég hef verið léleg að blogga, en tölvan mín dó
daginn eftir að síðasta færslan var skrifuð... Hún lenti
í slysi í ágúst, en þá helltist yfir hana hvítvín. Hún lifði
samt óvenjulengi eftir það, en dó eftir að Danni slökkti
á henni og hún hefur ekki viljað ræsa sig aftur síðan
þá...
Á þessum vikum sem hafa liðið síðan ég bloggaði síðast hefur
margt gerst...
Við Danni erum flutt í nýju íbúðina hans og erum að klára að setja
upp veggi til að stúka af herbergi fyrir Selmu Rán, þetta er
ótrúlega kósý íbúð, og verður enn meira kósý eftir að við erum búin
að klára herbergið og þífa þetta helv. sparslryk sem er yfir allri
íbúðinni...
Ég er hætt í skóla og er farin að vinna á leikskóla, er á
leikskólanum hennar Selmu Rána. Ég var að vinna þar með
skólanum í haust og komst aftur á deildina mína... Það var
æðislegt að hitta börnin "mín" aftur... Selma fer á
annan leikskóla í haust, en það er leikskóli í hverfinu okkar og ég
ætla að sækja um vinnu á öðrum leikskóla í sama hverfi. Það
er nefnilega ekki vel séð að foreldrar séu að vinna á leikskóla
barnsins síns, en samt var það leikskólastjórinn á leikskólanum
hennar Selmu sem hringdi í mig og bauð mér vinnu...
Við erum búin að fá okkur kött... Hann heitir Jack og verður
að sjálfsögðu merktur Jack Daníels... Hann er
óttarlega vitlaus greyjið, ræðst á tærnar á manni eins og hann fái
borgað fyrir það... Virðist ekki læra að borð eru bannsvæði,
og svo fyrstu vikurnar þá réðist hann á mann og beit og klóraði
(það var hans hugmynd að leik)... En eftir að Anna og Böddi
komu með kisuna sína, en við ætluðum að passa hana meðan þau væru
úti, en Jack var svo vondur við hana og hún skíthrædd að þau ákváðu
að láta einhvern annan passa prinsessuna, þá hefur Jack róast mjög
mikið...
En jæja, ég verð víst að halda áfram að vinna... Tók
aukavakt í 10-11 Eggertsgötu, og það er svo lítið að gera að ég
hangi bara í tölvunni... Reyni að komast í tölvu fljótlega
aftur til að blogga meira...
Sigga Lára
»
16.02.2006 23:05:07 / SiggaLára
Elskan mín á afmæli í dag, en ég hef nánast ekkert fengið að
hitta hann... Dagurinn hans byrjaði á því að hann þurfti að
fara á fund frá 9-12 og svo er hann á kvöldvakt núna, eða frá
16-24. Þessir 4 tímar sem hann hafði á milli fundarins og
vinnunnar fór í að útvega öll þau gögn sem hann þarf til að
standast greiðslumat vegna íbúðakaupa. Fór reyndar með honum
á fasteignasöluna að gera tilboð í íbúðina sem okkur langar í og
svo fengum við okkur að borða áður en hann varð að henda mér heim
til að geta farið í vinnu. Við bætum okkur það upp
annaðkvöld, en hann er að spila á Hressó og svo verður djammað
eftir það, okkur tókst báðum að hagræða vinnunni þannig að við erum
í fríi á laugardaginn, ég þarf reyndar að mæta kl 18 í vinnu, en
það er nógu seint til að ég verði búin að jafna mig eftir
djammið...
Ég er í þvílíkum vandræðum, ég veit ekkert hvað ég á að gefa
honum, er reyndar að spá í að bíða með það þar til við flytjum, því
við erum í því núna að ákveða hverju eigi að henda og hvað eigi að
fara í geymslu, þannig að það er ekkert sniðugt að vera að bæta
einhverju við fyrr en við erum flutt og vitum hvað okkur vantar eða
öllu heldur hvað við höfum pláss fyrir... En ef þið eruð með
hugmyndir að flottum gjöfum þá endilega látið mig vita... Það
er ógerningur að toppa afmælisgjöfina sem hann gaf mér, enda tek ég
hálsmenið ekki af mér nema þegar ég fer í sturtu eða sund...
»
12.02.2006 19:56:58 / SiggaLára
Það hlaut að koma að því að ég færi að gera eitthvað við síðuna
hennar Selmu Ránar, ákvað að dunda mér við þetta á
meðan Danni var að spila á árshátíð Ráðhúss Reykjavíkur í
gærkvöldi. Við vorum búin að ákveða að hafa kósý videokvöld
eftir að hann væri búinn að spila og því fór ég ekkert á djammið,
enda var föstudagskvöldið alveg nógu stór skammtur af drykkju og
djammi fyrir þessa helgi. Við fórum í partý í Hafnarfjörðinn til
vinnufélaga hans Danna og kíkum svo á Hressó, þar sem ég hitti m.a.
Siggu og Oddnýju sem voru með mér í sálfræði í HÍ, og vorum þar til
lokunar. Föstudagskvöldið endaði reyndar ekkert alltof
vel, þar sem ég fékk líka þetta þvílíka mígrenikast ásamt því að fá
tak í axlir og bak. Mig verkjaði við hvert einasta skref sem
ég tók og var því ekkert alltof góð í skapinu, og greyið Danni fékk
að finna aðeins fyrir því. En ég held að þessi elska sé
búinn að fyrirgefa mér það hvernig ég talaði við hann, ja þegar ég
talaði við hann á annað borð, því ég var of upptekin við að reyna
að útiloka sársaukann og passa mig að segja ekkert sem ég gæti séð
eftir seinna.
En þetta verður að vera nóg í bili, ég ætla að reyna að leggja
mig í smá stund og fara svo að taka til áður en Selma Rán kemur
heim aftur. Fréttir af íbúðamálunum koma um leið og þau mál
fara að skýrast.
»
08.02.2006 12:48:40 / SiggaLára
Jæja, nú fer að styttast í það að við fáum íbúðarmálin á hreint,
svar frá fasteignasalanum sem hafði samband við Danna um íbúðina
hans kemur í dag eða á morgun. Þá vitum við hvort við þurfum
að fara að leita okkur að leiguíbúð eða ekki, því hvernig sem
fer með íbúðina hans þá flytjum við af görðunum. Reyndar
þurfum við líklegast að finna okkur leiguíbúð, en spurningin er sú
hvort það verði skamm- eða langtímaleiga. Er að spá í að fara
að redda mér kössum svo hægt sé að pakka niður því dóti sem við
notum lítið sem ekkert, þannig að það verði ekki eins mikið stress
þegar við flytjum. Ég þarf að sortera hvað fer með okkur í
næstu íbúð, hvað eigi að fara í geymslu og hverju megi henda.
Svo þarf ég líka að taka til í dótinu hennar Selmu Ránar, hún á
alltof mikið dót. Senda sumt til ömmu og afa í Keflavík og
kannski eitthvað af því dóti, sem hún er vaxin uppúr, til litlu
frænku hennar.
Ég er mikið búin að vera að skoða laus störf á leikskólum hér í
Reykjavík og það virðist vera nóg af þeim, en ég get ekki sótt um
fyrr en ég veit í hvaða hverfi við munum búa í, jafnvel er ég að
spá í að sækja um í leikskólum hér nálægt svo Selma Rán þurfi ekki
að skipta um leikskóla, henni líður svo vel hér þar sem hún
er. Þá get ég bara farið með hana á leikskólann á leiðinni í
vinnuna og sótt hana svo þegar ég er búin, reyndar væri samt best
að hún fengi pláss á leikskólanum sem ég færi að vinna á.
En læt þetta vera nóg í bili...
»
05.02.2006 16:35:19 / SiggaLára
Jæja, það hlaut að koma að því að stelpan léti sjá sig. Ég
er búin að hringja reglulega í Jónu til að spurja hvort hún ætli
ekki að fara að koma henni út. Hringdi í hádeginu í dag og
spurði spurninguna sem ég hef spurt síðustu vikurnar "Hvenær á svo
að koma krakkanum í heiminn?" og svarið sem ég fékk var "Ja, hún
kom í heiminn kl. 9.47 í morgun" Sem sagt, stór 17,5 marka
stelpa fæddist í morgun á afmælisdegi langafa síns. Móður og
barni heilsast vel, en Jóna sagði samt sem áður að hún myndi aldrei
gera þetta aftur, ég trúi henni svona rétt mátulega þar sem hún
sagði þetta líka eftir að Kristófer fæddist.
Jóna, Ægir og Kristófer, enn og aftur til hamingju með
prinsessuna...
»
04.02.2006 22:15:17 / SiggaLára
Jæja, þá er komið í ljós hvaða lög keppa á lokakvöldi íslensku
undankeppninnar í Eurovision og mig langar til að óska Svenna til
hamingju með góðan árangur laganna sinna, en hann átti 3 lög í
keppninni og þau komust öll áfram á lokakvöldið, geri aðrir
betur. Uppáhaldslagið mitt er reyndar Útópía, þar sem ég hef
fengið að fylgjast með ferli þess lags nánast frá
upphafi. Hann hefur af og til sent mér lög til að fá
mitt álit á þeim (byrjaði á því fyrir tæpum 2 árum, þegar við fórum
að tala saman aftur eftir nokkurra ára hlé) því hann segist treysta
því að ég svari hreint út hvort mér finnist þau góð eða ekki, hvað
mér finnist vera að þeim lögum sem ég er ekki sátt við, en segi
ekki bara "já þetta er ógeðslega flott" þar sem hann er vinur minn
og ég vilji ekki særa hann. Svo er það algjörlega undir honum
komið hvort hann taki eitthvað mark á því sem ég segi, en ég segi
mitt álit 100% hreint út.
Svenni, ég er stolt af þér!!
En nóg um Eurovision, það er kominn tími til að halda áfram með
24 maraþonið...
»
04.02.2006 17:04:32 / SiggaLára
Það hlaut að koma að því að ég sleppti tónleikum með strákunum á
Hressó, en það var ekki viljandi gert. Við Danni höfðum verið
að kúra uppí sófa og ég ákvað að liggja lengur þegar hann fór að
róta. Ætlaði að mæta eitthvað um 11 leitið, en nei ég sofnaði
fljótlega eftir að hann fór og vaknaði ekki fyrr en 10 mínútur
í 1 og þá tók því ekki að fara, bara til þess eins að fá far
heim með Danna.
Svefnleysi og pirringur Þegar Danni
kom heim var ákveðið að horfa á 24, þar sem Danni var ekkert
þreyttur og ég ný vöknuð. Við horfðum á 10 þætti og
uppúr 7 var farið að tala um það að fara að sofa.
Ég gat ekki sofnað, var skíthrædd um að
það að ég myndi sofa yfir mig í vinnuna, en ég átti að
mæta kl. 9.00. Lá í sófanum í stofunni og mér leiddist, Danni
sofnaði frekar fljótt. Svo loks þegar ég var að ná að festa svefn
hringdi helvítis vekjaraklukkan. Mér finnst ótrúlegt að ég
hafi náð að þrauka daginn, sérstaklega þar sem hann var svo
rólegur.
En jæja, held að það sé kominn tími á að ég fari að sofa, er að
leka niður vegna þreytu, er hætt að ná að halda einhverju
samhengi í því sem ég skrifa.
»
03.02.2006 14:48:52 / SiggaLára
Af mér er bara allt gott að frétta, er reyndar orðin frekar
þreytt á þessu námi sem ég er í, og er því að leita að annarri íbúð
svo ég geti flutt af Stúdentagörðunum og farið að vinna. Eins
og það er nú gott að vera hér á görðunum þá þarf ég víst að vera í
námi við HÍ til að halda íbúðinni.
Það sem mig langar til að gera er að fara að vinna á leikskóla og
sækja svo um fjarnám í leikskólakennaranum við KHÍ haustið
2007. Eins og margir vita þá var ég að vinna á leikskóla með
náminu á síðustu önn, var 3 tíma á dag í 8 vikur, því það var svo
mikil mannekla á leikskólanum á þeim tíma. Mér hefur
aldrei liðið jafn vel í nokkurri vinnu og mér leið þá. Ég
hlakkaði til að mæta í vinnuna og varð leið þegar leið á vikuna því
ég hitti börnin mín ekkert yfir helgina. Ef mér leið eitthvað
illa tókst þessum elskum alltaf að kæta mig með einlægni sinni,
börnin eru yndisleg, það er ekki hægt að segja annað. Mér
hefur aðeins einusinni áður hlakkað til að mæta í vinnuna en þá var
ég stuðningsfulltrúi í 4. bekk í grunnskóla. Hvað get ég
sagt, það á víst vel við mig að vinna með börnum, sama á hvaða
aldri þau eru.
Ég kíki ennþá á deildina mína þegar ég fer með Selmu Rán á
leikskólann og þegar ég sæki hana þegar dagurinn er búinn, og
alltaf er jafn gaman að sjá þessi kríli.
En nóg um þetta, ég þarf víst að fara að taka úr vél og pakka
niður fyrir Selmu Rán því hún er að fara til ömmu og afa í
Keflavík, þar sem ég þarf að vinna um helgina.

Selma Rán - prinsessan mín
»
03.02.2006 14:25:41 / SiggaLára
Eins og spaces.msn.com bloggsvæðið var gott, þá hefur það verið
til vandræða síðan í október og ég er gjörsamlega búin að fá nóg af
því, þannig að ég ákvað að opna nýtt blogg hér á
blog.central.
»
|
|